|
19.02.2008 00:27:26 / Gormur
Þar sem að það er búið að breyta öllu hérna á blog.central.is þá hef ég ákveðið að færa mig með bloggið og er kominn á www.biggz.blog.is endilega komiði við þar og kvittið fyrir ykkur
»
10.02.2008 17:36:10 / Gormur
Dagurinn í dag er ekki vinur minn ég hef ekki verið jafn þunnur síðan síðast. Og í þokkabót þá tapar united í grannaslagnum á móti Manchester city 2-1 jæja það er bara þannig við getum ekki alltaf unnið en ég sem sagt fór á jammið í gær og hef ekki skemmt mér jafn vel á kaffi andskotans í langann tíma dansaði og drakk langt undir morgunn en jæja ég er þunnur og hef leyfi til að skrifa ekki meira þangað til næst dúllur BLE BLE
»
08.02.2008 22:58:57 / Gormur
Jæja það er komið að því að blogga annan daginn í röð. Þessi dagur er búinn að vera rugl og ekkert annað ég byrjaði daginn á því að vakna kl 09:00 til að fara út á reykjavíkurflugvöll til að sækja bílinn hennar mömmu því ég var að fara með hann á pústverkstæði, hann átti tíma kl 11 en ég var búinn að lofa að skutla ömmu og afa til sjúkraþjálfara sem átti að vera kl hálfellefu jæja ég kem inn í hafnarfjörð þá er ég búinn að fá pabba til að skutla ömmu og ég keyri dallinn hennar mömmu á verkstæði skil hann eftir læt pabba keyra mig út á völl aftur til að sækja minn bíl og bruna inn í fjörð aftur til að sækja ömmu til sjúkraþjálfara ég keyri hana heim og tek afa til þjálfa bíð eftir honum og keyri hann í bónus en eins og eðlilegt er þá er gamalt fólk farið að gleyma og hann gleymdi öllu brauðáleggi þannig að ég keyri hann í nóatún hann kaupir það sem hann þurfti og við stefnum heim til þeirra og ég keyri svo aðeins út á pústverkstæði til að athuga hvort bíllinn sé tilbúinn hann var það en það sem ég gerði mér ekki grein fyrir var að ég skrapaði allar hlífar undan bílnum þegar ég keyrði inn á planið hjá þeim sem þýddi að ég varð að hringja í pabba og láta redda verkstæði sem og hann gerði þegar ég kem þangað og sé undir bílinn þá er eins og ég hafi verið að keyra í hrauni því bíllinn var svo illa farinn undir en það var ekki nema von að hann fór svoleiðis þetta voru einhvers konar pappa hlífar undir honum þannig að það voru pantaðar nýjar hlífar undir hann og biggi sáttur við það en hvað um það . Hvað er málið með þetta skítaveður ég vona að það flæði ekki inn í íbúðina hennar mörtu en það vantaði bara 5 CM upp á það en ég nenni ekki að skrifa meira því að ég ætla að horfa á professional poker tour sem verður á eftir þangað til næst bless bless krúttin mín Svenni á ennþá setningu mánaðarins sem er ANSANS VANDRÆÐI hahaha jæja góða nótt
»
07.02.2008 17:10:24 / Gormur
Jæja þá er maður búinn að ákveða að ætla að vera duglegur að skrifa hérna inná síðuna þar sem að maður er nú rúmliggjandi heima og getur ekkert unnið. Dagurinn í dag er búinn að vera jafn leiðinlegur og flestir hinir dagarnir síðan ég hætti að vinna nema það að ég fann leik á netinu sem er svona tower dæmi eitthvað og það er ekki möguleiki að komast lengra en 4 borð í honum ég er núna búinn að eyða 4 tímum í þennann leik og miðar ekkert áfram. En þið sem þekkið mig og svenna þá vitiði að við er snældugeðveikir og höfum tekið okkur fyrir hendur annað slagið að spila tölvuleiki saman í PS2 og það byrjaði allt á Hitman sem svenni átti og við fórum að spila hann annað slagið á kvöldin og svo var þetta komið út í það að spila öll kvöld þangað til við kláruðum XXXXXXXX leikinn sem orsakaði það að við skelltum okkur út í búð og keyptum leik nr.2 og þar af leiðandi kláruðum við hann líka og svo koll af kolli þangað til við vorum búnir með alla hitman leikina sem er ekki frásögufærandi nema hvað að við byrjuðum þá bara í need for speed most wanted búnir að vera að spila hann í 2 vikur núna og loks kláruðum við hann í gærkvöldi. en þegar ég var á leiðinni heim frá svenna eitthvað eftir miðnætti þá lenti ég heldur betur í skemmtilegu atviki nema hvað að ég lendi útaf hahahaha innanbæjar. Málið var að ég var að keyra framhjá 10-11 á reykjanesbrautinni rétt áður en að maður kemur að smáralind og þar er búið að skafa vel og mikið nema að ég er á hægri akreininni og allt í einu þá fer snjómoksturstækið greinilega niður í smára í stað þess að hann hefði klárað brautina sem orsakaði það að ég lenti í skaflinum sem hann skildi eftir á veginum og bíllinn byrjaði að skrika og endaði á milli akreinanna þar sem að annar bíll var þar fyrir síðan kemur löggumann og fer eitthvað að skoða aðstæður og kallar á dráttarbíl til að draga okkur upp nema að hinn bíllinn er látinn í friði vegna þess að hann var á sumardekkjum ég er dreginn upp og keyri bara mína leið áfram löggan skildi alveg að ég hefði farið útaf miðað við moksturinn á veginum en hvað um það núna ætla ég að fara að hætta áður en ég fær ritstíflu svo ég geti nú skrifað eitthvað á morgun en ég segji þá bara heyrumst á morgun krílin mín bless bless. P.S Setningu mánaðarins á Svenni frændi en hún kom allt í einu upp úr honum þegar við vorum að spila need for speed hún hljóðar svo: ANSANS VANDRÆÐI. hahahahahaha og það fyndna var að hann var svo einlægur þegar hann sagði þetta. jæja bless bless þangað til næst Biggi out
»
25.06.2007 11:49:29 / Gormur
Tjékkið á þessu 5 íslenskir strákar finna lík
í Heiðmörk http://www.b2.is/?sida=tengill&id=242414
»
26.05.2007 12:49:04 / Gormur
jæja þá er strákurinn kominn heim á klakann og
væri alveg til í að vera lengur það er skítakuldi hérna og
umferðamenningin ekkert skánað. Ég er alveg fastur á því að við
þurfum að fá okkur lestar þetta er svo miklu miklu þægilegra og
fljótlegra. en annars er ekkert spes að frétta af mér nema að ég
tók yfir 600 myndir úti sem mér finnst nú bara nokkuð gott hjá
mér sko. er nú ekki duglegastur í heimi að taka myndir en núna
kom það. nú það sem maður gerir af sér þangað til maður fer að
vinna verður ekkert svaðalegt ætli ég kíki ekki með gamla
kallinum upp í bústað og marta og einhverjir kíkja líka svo fer
ég til jóhönnu á morgun heilsa upp á kellinguna það er nú
lámarkið svo verður bara vinna vinna og vinna framundan hjá mér
í sumar þannig að það ætti að vera gott. nú ég á eftir að reyna
að setja eitthvað af myndum hérna inn þannig að þið fáu sem
komið inn á síðuna getið séð það en ég er ekki alveg sáttur við
það að sjá aldrei hver er að koma inn vegna þess að fólk virðist
ekki fatta að til þess er gestabókin. annars ligg ég bara hérna
upp í rúmi drullulatur að skrifa einhverja ferðasögu og er að
spá í að fara að enda hana þetta er komið gott.
Með kveðju Biggi
»
21.05.2007 19:30:59 / Gormur
já minn er bara í
Danmörku og er blindfullur eins og maður á að vera en eyðslan
hefur farið aðeins fram úr hófi en ekkert sem maður ræður ekki
við nú við fórum ...... nei nenni ekki að skrifa það fariði bara
á http://sven.blog.is/blog/sven/
og lesið bara allt um þetta þar þangað til
næst
Bless Bless.Kveðja Biggi
»
10.05.2007 18:14:41 / Gormur
Jæja þá eru að fara að koma kosningar og ég er búinn að vera að
skoða svolítið stefnumálin hjá þessum flokkum og mér lýst vel á
eitt en svo kemur alltaf eitt sem ég fíla ekki þannig að ég er
búinn að finna það út að ég ætla að skil auðum seðli. En annars þá
frétti ég líka að samfylkingin vill setja upp rennibrautagarð í
reykjavík og svo stækka fjöldskyldu og húsdýragarðinn þannig að það
verði fleiri dýr og stærri garður þetta á að verða skemmtigarður
meira en fjöldskyldugarður sem hljómar bara helvíti vel. Nú svo er
ég að fara út eftir 3 daga sem er tær snilld ég get ekki beðið,
hlakka svo til, en svo er maður víst að fara í 30 afmæli hjá
systur hans svenna ætli maður verði ekki að láta sjá sig. Það er
reyndar búið að bjóða mér í svo mörg partý að ég kemst ekki yfir
þetta allt saman. en jæja ég nenni ekki að skrifa meira þannig
að þangað til næst veriði bless Biggz
P.S.
hættiði svo þessu væli um að ég eigi að skrifa meira ég hef ekki
heila í að muna eftir þessu þið ættuð að vita það best sem þekkið
mig 
»
10.01.2007 12:56:26 / Gormur
Jæja það var föstudaginn 5 janúar síðastliðinn er ég fór í
sumarbústað með frænda mínum og vinnufélaga sem er ekki
frasögufærandi nema hvað að við fyllum ísskápinn af áfengi eins og
það sé verið að bjóða 20 manns í heimsókn. nú föstudagurinn var
voðalega rólegur bara 3 á svæðinu drukkum eitthvað aðeins og
skelltum okkur í pottinn enduðum þar í 3 tím bara að spjalla um
ekkert (ég veit ég veit) hljómar eins og pulsupartý en þetta var
fínt að hafa svona rólegt kvöld en jæja laugardagurinn 6 janúar ég
sef ekki mikið lengur en til 8 er ekki enn að fatta af hverju ekki
en hvað um það ég fer bara í sturtu og fæ mér að borða og hangi
eitthvað en leiðist svo mikið að ég fer bara aftur í sturtu en þá
vaknar Sævar við mig þá er klukkan 13:30 ég klára sturtuna og
skelli mér beint í að vekja svenna sem gengur mjög vel því að hann
liggur þarna upp í rúmi með galopin augun og ég stekk hæð mína
þegar ég sé hann því hann horfir á mig eins og hann sé að fara að
drepa mig haha. Svo er svenni kominn á fætur og við skellum okkur
allir á Selfoss ná okkur í meira bland og kaupum líka helling af
beikon og eggjum til að hafa alvöru morgunmat á sunnudaginn en já
við kominm svo aftur og ég byrja á því að fara að moka snjóinn af
pallinum og sópa kringum pottinn læt renna í hann smá og hleypi svo
aftur úr til að skola skítinn og snjóinn í burtu, tappinn settur í
og látið buna heitt vatn í hann. Dett ég svo inn um dyrnar
hálffrosinn og fer beint í að hlýja mér en svo erum við eitthvað að
spila og leika okkur í ps2 og eitthvað og gleymum okkur alveg
ákveðum að fara að elda um 9 um kvöldið Sævar er sendur út með
kjötið og ég settur fyrir framan eldavélina til að búa til
bernaissósu
og heppnaðist þessi matur bara helvíti vel nú svo er eitthvað fólk
á leiðinni litli bróðir með gítarinn hans Svenna og einhverjir voru
nú með honum svo er eikker hópur af stelpum að koma líka allir hafa
gaman saman og skella sér í pottinn og bróðir minn hverfur svo heim
og svo allt í einu þurfa stelpurnar að fara en þá var klukkan líka
orðin 6 skiljanlegt en ég held að ástæðan fyrir því að ég er veikur
nuna er vegna þess að ég var of lengi í pottinum
jæja ég held að þetta sé nóg í bili
P.S ég spyr nú bara kann fólk ekki að keyra nú til dags ég var að
keyra í bæinn í skafrenningi og jújú það var kanski tvíbreið akrein
en önnur akreinin var full af snjó samt var fólk að reyna að taka
framúr og bílarnir fara á fullt skrið og oftar en ekki yfir á
vitlausan vegarhelming ég spyr hvað er að fólki?
Þangað til næst kveðja Biggz
»
05.11.2006 20:50:31 / Gormur
Jæja núna er ég alveg kominn með nóg (af áfengi) ég var í partýi í
gær og ég veit ekki alveg hvar ég kom öllu þessu áfengi fyrir enda
brást líkaminn við því eins og við mátti búast ég var á EYRUNUM
gjörsamlega út úr kortinu enda er ég svo þunnur í dag að fólk er að
labba á mig hægri vinstri útaf því það sér mig ekki. En allavega þá
er allt gott að frétta af mér ég er að reyna að selja jeppann og
við erum að reyna að selja íbúðina okkur langar að komast aftur til
hfj sem er bara tær snilld því að ég er eins og flestir vita að
vinna í Hfj og þá getur mar sofið alveg 20 mín lengur þess vegna er
ég mjög duglegur að gista hjá henni elskulegu systur minni. En
annars þá er mamma flutt á Breiðdalsvík  sem er fokkin hvergi í
einu orði sagt helvítis 8 tíma keyrsla þangað en fólkið þar eru
algjörir snillingar maður segist vera úr reykjavík og það er
sturtað oní mann áfengi sem er bara tær snilld en allavega þá er ég
ekki að nenna að skrifa meira hérna í bili
P.S ég verð verkstjóri næstu 2 vikurnar
Kv. Biggz
»
22.08.2006 12:05:43 / Gormur
jæja þá er
komið að því ég er að spá í að finna mér aðra vinnu þetta er
ekki að gera sig
Ég er allt of mikið látinn keyra
strætó þar sem að ég sótti ekki um það heldur rúturnar þá hef ég
hugsað um að fara að segja upp. Þau fyrirtæki sem koma til greina
eru SBA Norðurleið, Kynnisferðir, Hópferðamiðstöðin og
GJ
Ég er samt ekki viss hvað ég geri
því að ef ég fer til SBA þá þarf ég að flytja norður það er ágætt
er það ekki er ekki bara gott að losna við asnann
norður?
Kveðja Biggz
»
07.08.2006 23:23:42 / Gormur
OK nú er ég FOKKIN brjálaður ég var búinn
að skrifa alla ferðasöguna og það strokaðist allt út ég gefst
upp ég hef aldrei skrifað jafn mikið á ævinni djöfull og
helvíti
»
23.07.2006 22:00:22 / Gormur
Fyrir stuttu var í viðtali í Birtu ung kona sem hafði búið erlendis
öll sín fullorðinsár. Hún er flutt heim núna og ástæðan er sú að
hún er barnshafandi og getur ekki hugsað sér betri gjöf handa
barninu sínu en íslenska frelsið. Helstu lífsgæði Íslendinga, sem
búa við leiðinlegt veðurfar, dýra matvöru og einangrun, eru
íslenska frelsið.
Og hvað felst í hugtakinu "frelsi" í þessu samhengi? Að geta sent
börnin sín út að leika án þess að þurfa að fara með þeim eða sjá
alltaf nákvæmlega hvar þau eru. Að geta fengið sér gönguferð í
rökkrinu, einn með sjálfum sér, án þess að eiga á hættu að vera
misþyrmt. Að geta farið út að skemmta sér með vinkonum sínum í
pæjulegum fötum og fengið sér í glas án þess að vera þar með orðin
réttmætt fórnarlamb nauðgunar. Frelsi til að gera sjálfsagða og
eðlilega hluti sem í flestum öðrum löndum teljast til munaðar sem
nánast enginn getur veitt sér eða telur sig eiga heimtingu á. En
hvernig stendur íslenska frelsið þessa dagana?
Í sjónvarpsfréttunum um daginn var sagt frá því að konur þori ekki
að kæra nauðganir vegna þess að sönnunarbyrðin er svo þung að þær
treysta sér ekki til að bera hana. Í fyrradag var viðtal í
fréttunum við konu sem hafði verið barin ítrekað í höfuðið með
felgulykli af barnsföður sínum.
Á menningarsólarhringnum, frá laugardagsmorgni til
sunnudagsmorguns, voru tveir ungir menn stungnir með hnífi. Annar
þeirra lést, hinn meiddist alvarlega. Að auki lá við að lögreglan
missti stjórn á unglingunum í bænum, sem að sögn miðborgarprestsins
fóru um bæinn í árásargjörnum torfum, ölvaðir og
eftirlitslausir.
Af umfjöllun fjölmiðla að dæma er það ekki óalgengt að þeir sem
fremja alvarlegustu ofbeldisglæpina eigi langa sakaskrá að baki,
hafi áður framið svipuð afbrot og eigi við ýmis vandamál að etja
sem rekja má til geðsjúkdóma eða eiturlyfjaneyslu. Engu að síður
eru þessir einstaklingar úti í samfélaginu þangað til þeir ganga
nógu langt til að hægt sé að loka þá inni til langs tíma og vonandi
veita þeim einhverja aðstoð. Að minnsta kosti verja samfélagið gegn
þeim.
Og af hverju er það? Geðdeildirnar eru sveltar svo fársjúkir
einstaklingar eigra úrræðalausir um göturnar. Fangelsin eru svo
full að fólk þarf að bíða mánuðum saman eftir því að sitja af sér
dóma. Afbrotamenn eru svo komnir aftur út í samfélagið löngu áður
en þeir eru tilbúnir að taka þátt í því, hvað þá að samfélagið geti
tekið á móti þeim. Í samfélagi sem telur ekki nema á við lítið
hverfi í stórborgum heimsins ætti þetta ekki að þurfa að vera
svona. Vandamál sem hafa vaxið stórþjóðum yfir höfuð ættu að vera
viðráðanlegri í svona litlu einangruðu samfélagi þar sem að auki
ríkir almenn velmegun og meira að segja þensla. En það má ekki
gleyma því að við erum samfélagið.
Fallegu, ríku, sterku "best í heimi" við erum samfélagið og við
erum of önnum kafin við að reyna að standa okkur í einhverju
óskilgreindu lífsgæðakapphlaupi til að taka nokkra ábyrgð á því sem
gerist og er að gerast hjá okkur. Við fyllumst óhug þegar við
heyrum um eitthvað sem getur skaðað glansímynd okkar af sjálfum
okkur en tökum enga ábyrgð.Við krossleggjum bara fingurna þegar við
heyrum um morð, rán og nauðganir og hugsum: vonandi ekki ég, sem
betur fer ekki ég! Hvað þarf að gerast til að byggð verði
almennileg fangelsi og góðar meðferðarstofnanir og fagfólk ráðið
til vinnu þar gegn mannsæmandi launum? Hvaða glæpur er nógu
alvarlegur til að við loksins teljum það þess virði að verja okkur
almennilega, hlúa að þeim sem eru sjúkir og skaddaðir á meðal okkar
á þann hátt sem þarf, þó það þýði að skilja þá frá samfélaginu þar
til þeir teljast reiðubúnir til að taka þátt í því? Hvað kostar það
mörg líf ? Og hvað verður um lífsgæðin okkar á meðan? Hvað verður
um íslenska frelsið?
Veit það einhver?
»
25.05.2006 18:04:01 / Gormur
Jæja þá eru að fara að koma kosningar og ég er búinn að vera að
skoða svolítið stefnumálin hjá þessum flokkum og mér lýst vel á
eitt en svo kemur alltaf eitt sem ég fíla ekki þannig að ég er
búinn að finna það út að ég ætla að skil auðum seðli ég frétti það
að það er búið að setja upp stöðumæla hjá spítulunum og það er
svartur ruslapoki yfir þeim og svo eftir kosningar þá á að taka
pokana af þeim svo er verið að setja stöðumæla fyrir utan skóla og
háskólana. Þetta er eitt það heimskulegasta sem ég hef heyrt ef þið
eruð eitthvað sammála mér þá endilega segið mér frá því. En annars
þá frétti ég líka að samfylkingin vill setja upp rennibrautagarð í
reykjavík og svo stækka fjöldskyldu og húsdýragarðinn þannig að það
verði fleiri dýr og stærri garður þetta á að verða skemmtigarður
meira en fjöldskyldugarður sem hljómar bara helvíti vel en jæja ég
nenni ekki að skrifa meira þannig að þangað til næst veriði
bless
Kveðja Biggz A.K.A Gormur
»
21.05.2006 22:04:15 / Gormur
Jæja þá er ég alveg suddalega þunnur ég hef
bara ekki lent í öðru eins og svo er bara vinnan framundan
það er víst alveg hellingur að gera í vikunni útaf sumarfríum
og læti en það er fínt bara meiri peningur fyrir mig. En það
sem er helst að frétta af mér er bara að ég er að spá í að
fara og skjóta mig eða eitthvað álíka bakið er alveg að drepa
mig og helvítis læknar segja alltaf bara "þetta jafnar sig"
ég er búinn að ver að versna með hverjum degi í 4 ár hvernig
getur þetta verið að skána þá ég skil ekki lækna þeir fá mann
á stofuna sína og skoða mann í 3 mín segja slappaðu af og
þetta jafnar sig og svo voga þeir sér að rukka mann um fleiri
tugi þúsunda. og einhvern veginn virðist það vera þannig að
það er allt að hækka í þjóðfélaginu nema launin þau lækka
sjáiði bara helvítis bensínverðið hvernig á maður að geta átt
bíl þegar maður getur ekki keyrt hann því að bensínið er
orðið svo dýrt ég segji að við ættum öll að leggja bílunum
okkar bara og sjá þá hvað helvítis olíufélögin segja þessir
menn eru að sitja á fokkin rassgatinu allann helvítis daginn
og segja svo hækka verðið og eru á fokkinn bullandi kaupi á
meðan við hin sem vinnum eitthvað fáum rétt svo fyrir salti í
grautinn mér finnst launin á íslandi alveg út í hött en það
er ekki mín deild að vera að tala um svona mál það er
örugglega einhver spekingur á blússandi kaupi við það að tala
um svona hluti nei ég veit það ekki hvað finnst ykkur er
þetta ásættanlegt þetta verð í landinu eins og til dæmis
matvörurnar maður fer í búðina og verslar einu sinni þá eru
bara mánaðarlaunin manns búin hvað er það? getiði sagt mér
það? svo þessar kosningar það segja alltaf allir að þeir
lækki skatta en svo vinna þeir kosningarnar og hvað gerist
skattarnir hækka er eitthvað að marka það sem þessir
embættismenn segja ég efast um það ég ætla allavega að skila
auðu en ég er kanski bara einn um það að hafa þessar
skoðanir. Og svo er það helvítis löggurnar þær eru að taka
svo hart á því að loka skemmtistöðum núna alltaf hálfsex ég
meina við vorum alltaf með opið til hálfsjö stundum lengur
þetta er tíminn sem er mest að gera hjá okkur nei ég veit það
ekki ég held að það sé komið nóg af röfli ég þurfti bara að
fá smá útrás það er nefninlega búið að gera mig svo pirraðann
núna ég ætla samt ekki að nefna nein nöfn en það eru sumir
sem geta kanski giskað á hver það er en allavega þá tala ég
við ykkur seinna ef ég verð ekki dauður áður
Kv. Biggi A.K.A einn alveg brjálaður
»
Síður: 1 2 3 4
|