21.05.2006 22:04:15 / Gormur
21 Maí
Jæja þá er ég alveg suddalega þunnur ég hef
bara ekki lent í öðru eins og svo er bara vinnan framundan
það er víst alveg hellingur að gera í vikunni útaf sumarfríum
og læti en það er fínt bara meiri peningur fyrir mig. En það
sem er helst að frétta af mér er bara að ég er að spá í að
fara og skjóta mig eða eitthvað álíka bakið er alveg að drepa
mig og helvítis læknar segja alltaf bara "þetta jafnar sig"
ég er búinn að ver að versna með hverjum degi í 4 ár hvernig
getur þetta verið að skána þá ég skil ekki lækna þeir fá mann
á stofuna sína og skoða mann í 3 mín segja slappaðu af og
þetta jafnar sig og svo voga þeir sér að rukka mann um fleiri
tugi þúsunda. og einhvern veginn virðist það vera þannig að
það er allt að hækka í þjóðfélaginu nema launin þau lækka
sjáiði bara helvítis bensínverðið hvernig á maður að geta átt
bíl þegar maður getur ekki keyrt hann því að bensínið er
orðið svo dýrt ég segji að við ættum öll að leggja bílunum
okkar bara og sjá þá hvað helvítis olíufélögin segja þessir
menn eru að sitja á fokkin rassgatinu allann helvítis daginn
og segja svo hækka verðið og eru á fokkinn bullandi kaupi á
meðan við hin sem vinnum eitthvað fáum rétt svo fyrir salti í
grautinn mér finnst launin á íslandi alveg út í hött en það
er ekki mín deild að vera að tala um svona mál það er
örugglega einhver spekingur á blússandi kaupi við það að tala
um svona hluti nei ég veit það ekki hvað finnst ykkur er
þetta ásættanlegt þetta verð í landinu eins og til dæmis
matvörurnar maður fer í búðina og verslar einu sinni þá eru
bara mánaðarlaunin manns búin hvað er það? getiði sagt mér
það? svo þessar kosningar það segja alltaf allir að þeir
lækki skatta en svo vinna þeir kosningarnar og hvað gerist
skattarnir hækka er eitthvað að marka það sem þessir
embættismenn segja ég efast um það ég ætla allavega að skila
auðu en ég er kanski bara einn um það að hafa þessar
skoðanir. Og svo er það helvítis löggurnar þær eru að taka
svo hart á því að loka skemmtistöðum núna alltaf hálfsex ég
meina við vorum alltaf með opið til hálfsjö stundum lengur
þetta er tíminn sem er mest að gera hjá okkur nei ég veit það
ekki ég held að það sé komið nóg af röfli ég þurfti bara að
fá smá útrás það er nefninlega búið að gera mig svo pirraðann
núna ég ætla samt ekki að nefna nein nöfn en það eru sumir
sem geta kanski giskað á hver það er en allavega þá tala ég
við ykkur seinna ef ég verð ekki dauður áður
Kv. Biggi A.K.A einn alveg brjálaður